Lífið

Annie Mist og Frederik eignuðust dreng

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Annie Mist var á handahlaupum daginn fyrir fæðinguna.
Annie Mist var á handahlaupum daginn fyrir fæðinguna. Annie Mist

Crossfit-parið Annie Mist Þórisdóttir og Frederik Emil Aeg­idius eignuðust dreng í gær. Annie Mist greinir frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum.

„Á svipstundu stækkaði hjartað um nokk­ur núm­er. Ég er svo ótrú­lega þakk­lát að vera kom­in með litla strrákinn minn í fangið, “ skrifaði Annie Mist við fallega mynd af þeim mæðginum. Fyr­ir eiga þau dótt­urina Freyju Mist sem fæddist árið 2020.

Drengurinn kom í heminn með keisaraskurði og segist Annie Mist líða vel og njóta lífsins sem fjögurra manna fjölskylda. Áður hafði komið fram að settur dagur væri 2. maí en hamingjuóskum rigndi yfir parið þegar þau tilkynntu óléttuna upphaflega í október síðastliðnum. 

Skjáskot/ Annie Mist

Þrátt fyrir að eiga von á barni hefur Annie Mist ekkert hægt á sér en degi fyrir fæðinguna birti hún myndskeið af sér á handahlaupum eins og ekkert sér eðlilegra fyrir kasólétta konu.

Annie Mist hefur í tvígang staðið uppi sem heimsmeistari í CrossFit og var sú fyrsta til að hljóta titilinn hraustasta kona í heimi. Þá er hún eigandi líkamsræktarstöðvarinnar CrossFit Reykjavík þar sem hún æfir og þjálfar.


Tengdar fréttir

Anníe Mist ólétt

CrossFit-kempan Anníe Mist Þórisdóttir er ólétt af öðru barni sínu. Hún greindi frá tíðindunum á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×